Refund policy

Viðskiptavinir eiga rétt á að skila vörum sem keyptar eru innan 14 daga frá afhendingu. Skilaréttur rennur út eftir 14 daga.

Hafðu samband við Herrafataverslun Kormáks & Skjaldar símleiðis eða með tölvupósti og við aðstoðum þig með skil eða skipti á vörunni.

Við endurgreiðum þá upphæð sem greidd var á herrafataverslun.is þegar varan hefur skilað sér til okkar og við höfum gengið úr skugga um að hún sé óskemmd. Herrafataverslun tekur ekki ábyrgð á þeim vörum sem eru í skilum fyrr en þær hafa borist til okkar.

Einnig er hægt að skila vörum í verslun okkar að Laugavegi 59, 101 Reykjavík.

Athugið: Vörur sem skilað er þurfa að vera í góðu ástandi, óskemmdar og ónotaðar. Verðmiðar og merkingar skulu vera á sínum stað. Skór skulu vera ónotaðir og í skókassanum sem þeir komu í. Herrafataverslun áskilur sér rétt til þess að neita að taka við vörum sem standast ekki þessar kröfur.

Endurgreiðsla: Við endurgreiðum vöruna með þeim greiðslumáta sem notaður var þegar varan var keypt. Endurgreiðsla fer fram þegar við höfum fengið vöruna í hendurnar og höfum gengið úr skugga um að hún sé í góðu ástandi. Það getur tekið nokkra daga fyrir endurgreiðslu að ganga í gegn.

Skipti: Hægt er að skipta vörum í aðrar vörur í versluninni. Til að afgreiða skipti skal hafa samband við verslun símleiðis eða í gegnum tölvupóst.

BACK TO TOP