Yfirhöfnin er sú flík sem flestir sjá þig í. Það er því mikilvægt að vanda valið og velja sér vandaða, fallega flík sem talar til þín. Klassískur ullarfrakki er eitthvað sem seint fer úr tísku og hefur fylgt herratískunni svo lengi sem elstu menn muna.
Fyrstu dæmin um tvíhneppta, dökkbláa sjómannajakka eru allt að 300 ára gömul. Ef einhvern tímann er hægt að tala um tímalausa klassík, þá er það í tilfelli sjómannajakkans. Jakkinn okkar...